Glatt verður á hjalla í Landakirkju á sunnudag kl. 11:00. Sr. Kristján Björnsson fyrrverandi sóknarprestur okkar Eyjamanna mun flytja hugvekju dagsins en sr. Guðmundur Örn þjónar fyrir altari. Hin ástsæla hljómsveit Jakkalakkar mun annast hljóðfæraleik og söng í fjarveru Kórs Landakirkju sem er á ferðalagi. Að sjálfsögðu er öllum frjálst að syngja með og efla þar með söngvandann í sjálfum sér.