Sunnudaginn 17.nóvember er minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Af því tilefni verður Guðsþjónusta dagsins í Landakirkju helguð þessu málefni.
Fólk er hvatt til að leiða hugann að fórnfúsu og óeigingjörnu starfi viðbragðsaðila og þeirri ábyrgð sem við öll berum í umferðinni. Beðið verður sérstaklega fyrir fórnarlömbum umferðarslysa og við munum hlusta á frásögn fulltrúa viðbragðsaðila í guðsþjónustunni.
Kór Landakirkju mun syngja undir stjórn Kitty Kovács og að lokinni Guðsþjónustu býður Slysavarnardeildin Eykyndill uppá kaffi og smákökur í safnaðarheimilinu.