Þýski æskukórinn FriFraVoce heldur tónleika í Landakirkju mánudaginn 20. júlí kl. 17:00 og er aðgangur að tónleikunum frír.
Kórinn var stofnaður fyrir ellefu árum og óx upp úr barnakórnum við klausturkirkjuna í Offenbach í Rheinland Pfalz. Kórinn skipa 30 ungmenni á aldrinum 15-25 ára og starfar á vegum prófastdæmisins í Obere Nahe og stjórnandi hans, Roland Lissmann gegnir einnig stöðu sem yfirkantor prófastdæmisins.Kórinn FriFraVoce heldur tónleika og syngur við messur, m.a. við útvarpsmessur og við ýmis kirkjuleg tækifæri.
Kórinn hefur ferðast talsvert, m.a. til Bandaríkjanna þar sem hann í samstarfi við framhaldsskólakór í New York tók þátt í hátíðartónleikum í tilefni af 500 ára afmæli siðbótar Marteins Lúter í Carnegie Hall sem er einn virtasti tónleikasalur heims.
Kórinn FriFraVoce syngur fjölbreytta tónlist, gospel, pop, þýsk þjóðlög og dægurlög og hefur m.a. sungið útsetningar af lögum rokksveitarinnar Rammstein.
Kórinn lofar góðri skemmtun.