Þýska kammersveitin Kamel kemur fram í safnaðarheimili Landakirkju fimmtudaginn 25. júlí nk. kl. 20:00.

Tónleikarnir eru liður tónleikaferðalagi sveitarinnar vítt og breytt en yfirskrift ferðarinnar er Fjötralaus (e. Boundless). Er það vísun í efni tónleikanna sem eru verk 20. aldar tónskáldanna Nikos Skalkottas, Dmitri Shostakovich, Jason Gotovac og Marijan Lipovsek og frelsandi kraft þeirra.

Aðgangur á tónleikana er frír en sveitin þiggur frjáls framlög.