Á morgun, sunnudag fyrir þjóðhátíð verður guðsþjónusta í Stafkirkjunni en það er venjan helgina fyrir þjóðhátíð.

Það verður síðasta sunnudagsmessa sr. Viðars áður en hann fer í sumarfrí og fæðingarorlof. Kemur hann aftur til starfa í janúar.

Guðsþjónustan hefst kl. 11 og mun Kitty organisti sjá um tónlist og Kór Landakirkju leiðir almennan song.

Sjáumst í “hinni” kirkjunni okkar