Þau verða 8 talsins, fermingarbörnin sem játast Kristi nk. sunnudag. Þessi duglegi hópur ungmenna er búinn að stunda fermingarfræðsluna af kappi í vetur hjá þeim sr. Guðmundi og sr. Viðari og hefur gengið vel. Þetta verða einmitt fyrstu ungmennin sem sr. Viðar fermir og mun honum án vafa takast verkið vel, en sr. Guðmundur verður honum til halds og trausts í fermingarmessunni. Messan hefst kl. 11.00 en fermingarmessurnar á vori hverju marka upphaf sumartíma Guðsþjónusta en þær verða á þessum tíma frá og með þessari helgi og út ágúst.
Kitty Kovács, okkar færi organisti og kórstjóri, fer fyrir Kór Landakirkju sem leiðir sálmasönginn.
Eftirfarandi ungmenni fermast á sunnudag
Adam Einar Bjarkason | Hólagötu 31 |
Arna Sirrý Helgadóttir | Brekkugötu 11 |
Díana Svava Birkisdóttir | Heiðarvegi 22 |
Hannes Haraldsson | Túngötu 5 |
Jón Ævar Hólmgeirsson | Kirkjubæjarbraut 10 |
Sigurbjörg Sigurfinnsdóttir | Bröttugötu 26 |
Sindri Þór Friðriksson | Hólagötu 30 |
Veigar Máni Vattnes Sævarsson | Hásteinsvegi 8 |