Viðmiðunargjaldskrá um greiðslur fyrir aukaverk presta þjóðkirkjunnar er gefin út af Prestafélagi Íslands. Síðasta verðskrá var gefin út 2. febrúar 2022. Sjá má hana hér á heimasíðu Prestafélags Íslands: https://prestafelag.is/gjaldskra/

a. Skírn

  1. Skírn – ekki innheimt fyrir skírn í guðsþjónustu.
  2. Skírn á dagvinnutíma prests, 0,7 einingar – 8.452 kr.
  3. Skírn utan dagvinnutíma prests, 1,4 einingar – 16.904 kr.

b. Fermingarfræðsla

  1. Fermingarfræðsla, 2,0 einingar – 24.148 kr.
    • Ekki er greitt sérstaklega fyrir fermingarathöfn

c. Hjónavígsla

  1. Hjónavígsla á dagvinnutíma prests, 1,3 einingar – 15.696 kr.
  2. Hjónavígsla utan dagvinnutíma, 2 einingar – 24.148 kr.
  3. Æfing vegna hjónavígslu utan dagvinnutíma, 1 eining – 12.074 kr.

d. Kistulagning

  1. Kistulagning á dagvinnutíma, 0,8 einingar – 9.658 kr.
  2. Kistulagning utan dagvinnutíma, 1,5 eining – 18.111 kr.

e. Útför

  1. Útför á dagvinnutíma prests, 3 einingar – 36.222 kr.
  2. Útför utan dagvinnutíma, 3,6 einingar – 43.466 kr.

f. Jarðsetning

  1. Jarðsetning duftkers eða kistu, sem ekki er í beinu framhaldi af útför, 1,4 eining – 16.904 kr.