1T2, 3T4 og TTT

1T2 (1. til 2. bekkur) er kirkjustarf fyrir krakka í 1. og 2. bekk, 3T4 (3. til 4. bekkur) fyrir krakka í 3. og 4. bekk og TTT (10-12 ára) fyrir krakka 5., 6. og 7. bekk. Byrjað er á léttri helgistund uppi í kirkju með söng, biblíusögu og bæn, en svo er farið í safnaðarheimilið í mikið fjör.